flugfréttir

Nýja gosið ekki hættulegt flugumferð - Nokkrar vélar flugu beint yfir gosið

31. ágúst 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:02

Air Berlin beint yfir gosinu kl. 10:49 í morgun á Flightradar24.com

Eldgosið sem hófst á ný í Holuhrauni norðan Vatnajökuls hefur ekki áhrif á flugumferð en talið er að gosið hafi hafist á sjötta tímanum í morgun.

Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík hefur skilgreint hættusvæði vegna blindflugs umhverfis eldstöðina í samræmi við upplýsingar frá Veðurstofu íslands.

Svæðið nær norður undir Mývatn og einungis upp í 6.000 feta (2 km) hæð en engar flugvélar voru á svæðinu þegar eldgossins hófst í morgun og það hefur engin áhrif á flugsamgöngur.

Hnit skilgreinds hættusvæðis vegna blindflugs: N6445W01610 - N6445W01730 - N6530W01800 - N6530W01600 - N6445W 01730

Hnit skilgreinds hættusvæðis vegna blindflugs

Flugumferðin gegnum íslenska flugumferðarsvæðið hefur gengið eðlilega fyrir sig og hafa vélar bæði flugið sunnan fyrir landið, norður fyrir og þverrt yfir en nokkrar farþegaþotur hafa flogið beint yfir gosstöðvarnar í 33. - 39. þúsund fetum.

Hér að neðan sést hvar farþegaþota af gerðinni Airbus A330 frá Air Berlin flýgur beint yfir eldgosið kl. 10:49 í morgun á leið sinni frá Berlín til Chicago og einnig American Airlines á leið frá Dusseldorf til Chicago en ekki er talið að farþegar hafi séð gosið þar sem veður hefur versnað á svæðinu.

Hinsvegar stafar flugumferð ekki hætta af þar sem ekki er um sprengigos að ræða líkt og í Eyjafjallajökli.





Eldgosið á vefmyndavél Mílu kl. 11:41







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga