flugfréttir
Fyrstu myndirnar af Dreamliner í litum Virgin Atlantic
Fyrsta Boeing 787-9 vélin fyrir Virgin Atlantic í litum félagsins
Svona lítur fyrsta Dreamliner-vélin út í litum Virgin Atlantic en vélin, sem er af lengri gerðinni (Boeing 787-9) mun fá nafnið „Birthday Girl“ og ber hún skráninguna G-VNEW.
Vélin kemur með rauðum hreyflum eins og allar aðrar vélar Virgin Atlantic en á tímabili voru menn „hræddir“
um að hreyflarnir yrðu hvítir.
Virgin Atlantic hefur pantað 16 Dreamliner-vélar en G-VNEW verður afhent
félaginu í september en jómfrúarflugið verður flogið þann 28. október frá London Heathrow til Boston.
Virgin Atlantic ætlar sér að fljúga Dreamliner-vélunum til austurstrandar Bandaríkjanna til að byrja með áður en
þeim verður flogið lengra til fjarlægari áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.