flugfréttir
Flugmaður missti meðvitund á meðan vélin flaug út á haf og fórst
- Flaug gegnum lokaða lofthelgi yfir Washington
Vélin fór í loftið frá Wisconsin en flugmaðurinn missti meðvitund og fórst vélin í Atlantshafið í gær og er enn leitað að flakinu
Flugmaður sem flaug lítillri flugvél í Bandaríkjunum missti meðvitund í gær með þeim afleiðingum að vélin flaug inn í lokaða lofthelgi yfir Washington D.C. áður en hún hélt áfram út á Atlantshafið þar sem hún hrapaði eftir að hafa orðið eldsneytislaus.
Vélin, sem var eins hreyfils og af gerðinni Cirrus SR22, fór í loftið frá flugvellinum í Waukesha í Wisconsin og
var ákvörðunarstaður vélarinnar Manassas í Virginíu sem er um 45 kílómetra suður af Washington-borg.
Bandaríska strandgæslan fékk tilkynningu í gær kl. 14:40 um vél sem hafði ekki lent í Manassas eins og gert var ráð
fyrir og hefði flogið inn í lokaða lofthelgi yfir höfuðborg Bandaríkjanna í 13 þúsund fetum.
Tvær F-16 orrustuþotur voru ræstar af stað sem náðu að staðfesta að flugmaður vélarinnar væri meðvitundarlaus um
borð og fylgdu þeir vélinni þar til hún missti hæð og fórst í Atlantshafið kl 15:17 í gær að austurstrandartíma, um 80 kílómetra suðaustur af Chincoteague-eyju
við strönd Virginíu.
Standgæslan fór á staðinn en náði ekki að koma auga á flak vélarinnar og þá hefur komið fram að enginn
annar vor um borð nema flugmaður vélarinnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.