flugfréttir
Malmö Aviation ætlar ekki að verða fyrsta félagið til að fá CSeries-vélina
Tölvugerð mynd af CSeries-vél í litum Malmö Aviation
Malmö Aviation ætlar að fresta því að taka á móti CSeries-vélunum frá Bombardier en flugfélagið sænska átti að vera fyrsta flugfélagið til að fá vélarnar afhentar á næsta ári.
Malmö Aviation segist óttast frekari seinkanir hjá Bombardier eftir að bilun kom upp í hreyfli við tilraunir á vélinni í maí en félagið pantaði 10 slíkar vélar í júní árið 2011, fimm af gerðinni
CS100 og fimm CS300.
Braathens Aviation, móðurfélag Malmö Aviation, segist vera í viðræðum við Bombardier um breytingar á afhendingaráætlun.
Bombardier segir að tilraunir með vélarnar muni hefjast að nýju á næstu vikum en sérfræðingar telja að prófanir munu
hefjast aftur snemma í september.
Þá hefur flugvélaframleiðandinn kanadíski tekið fram að bilunin sem varð í hreyfli á tilraunavélinni muni ekki hafa
áhrif á afhendingar sem eru enn á áætlun á seinni heilmingi ársins 2015.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.