flugfréttir
Fimm létust er Piper-vél fórst norður af Denver
Mynd af flaki vélarinnar sem tekin var í dag. Vélin fórst á graslendi nálægt flugvellinum í Erie
Að minnsta kosti fimm létu lífið í flugslysi í gær er lítil flugvél fórst norður af Denver í Colorado í Bandaríkjunum.
Flugvél af gerðinni Piper PA-46 fórst nokkrum hundrum metrum frá flugbrautinni á Erie Municipal flugvellinum
en ekki kemur fram hvort flugvélin hafi verið að lenda eða hvort hún var í flugtaki.
Þrír voru látnir er neyðarteymi kom á staðinn og var farið með tvo á spítala sem voru úrskurðaðir látnir við komuna.
Bærinn Erie er um 20 kílómetra norður af Denver. Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) rannsakar nú
slysið sem átti sér stað kl. 11:50 að staðartíma í gær.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.