flugfréttir

Rússar vilja fá niðurstöður úr svörtu kössunum úr flugi MH17

1. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:12

Flug MH17 var skotið niður nálægt Hrabove í Úkraínu þann 17. júlí í sumar

Rússar krefjast þess að fá að vita hvers vegna flugslysasérfræðingar hafa ekki enn birt opinberlega gögn úr svörtu kössum malasísku farþegaþotunnar, flug MH17, sem var skotin niður í Úkraínu í júlí í sumar.

Rússneska ríkisstjórnin hefur sakað Úkraínu um að hafa skotið vélina niður en úkraínsk stjórnvöld segja að rússneskir aðskilnaðarsinnar hafi skotið vélina niður með langdrægu flugskeyti.

"Þetta stórslys hefur vakið upp fleiri og fleiri spurningar en upp á síðkastið hefur ekki verið mikið talað um þetta", sagði Anatoly Antonov, varnarmálaráðherra Rússlands.

Anatoly Antonov, varnarmálaráðherra Rússlands.

Antonov tekur fram að úkraínsk herflugvél hafi verið að fljúga meðfram malasísku farþegaþotunni áður en hún var skotin niður og telur hann að sú vél hafi verið upphaflegt skotmark og segir hann að uppreisnarmennirnir hefi sennilega mistekist að skjóta þá vél niður og flugskeytið þess í stað hæft flug MH17.

"Af hverju er ekki búið að birta upptökur úr hljóðritum vélarinnar með samtali flugmannana við flugumferðarstjórana", sagði Antonov sem krefst þess að gögnin verði gerð opinberr en Rússar hafa verið undir miklum þrýstingi vegna fjölda ásakanna um stuðning við rússneska uppreisnarmenn sem taldir eru bera ábyrgð á að hafa grandað vélinni.

Rússar þrýsta núna á að fá svör en það eru hollensk yfirvöld sem stjórna rannsókninni þar sem 195 af þeim 298 manns sem voru um borð, voru frá Hollandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga