flugfréttir
Myndband: Fljúgandi furðuhlutur yfir Himalaya-fjöllum
Myndbandið á að hafa verið tekið í áætlunarflugi árið 2012
Hér er myndband sem farþegi um borð í áætlunarflugi tók út um gluggann af fljúgandi furðuhlut sem fylgdi vélinni eftir yfir Himalaya-fjöllunum.
Fljúgandi furðuhlutir hafa verið tíðir í Himalaya-fjöllunum allt frá tímum seinni heimstyrjaldarinnar og hófu indversk stjórnvöld
að rannsaka þessi fyrirbæri formlega í fyrra sem oft hafa sést nálægt landamærunum við Kína og öðrum stöðum í fjallgarðinum sem er einn af afskektustu svæðum veraldar.
Þetta myndskeið var tekið í mars árið 2012 en engar sérstakar getgátur hafa komið fram varðandi hvaða hlutur var þarna á ferðinni en hann virðist fylgja sömu flughæð
og hraða og vélin sem myndbandið er tekið úr áður en hann þýtur í burtu til baka á miklum hraða og hverfur.
Spurningar hafa þó vaknað varðandi þetta myndband líkt og hvers vegna var þetta tekið upp í svarthvítu en ekki í lit og hvers vegna
hafa engir farþegar eða flugmenn vélarinnar komið fram og tilkynnt um þetta atvik.
Nokkrir sérfræðingar, sem hafa skoðað myndbandið, sjá ekki margt sem bendir til þess að um tæknibrellur
sé að ræða þótt aðrir telja að hér sé falsað myndband á ferðinni.
Myndbandið sem tekið var í mars árið 2012:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.