flugfréttir
Philippine Airlines kveður júmbó-vélina eftir 35 ár á flugi
- Síðustu tveimur júmbó-vélunum flogið á næstunni í brotajárn í Arizona
Slökkvibílar mynda vatnsboga yfir síðustu Boeing 747-400 vél Philippine Airlines
Philippine Airlines kvaddi í dag síðustu jumbó-þoturnar tvær í flota sínum sem nú eru á leið í sitt síðasta flug í flugvélakirkjugarð í Arizona í Bandaríkjunum.
Flugfélagið segir að vélarnar, sem báðar eru af gerðinni Boeing 747-400, hafa verið seldar til fyrirtækis í Bandaríkjunum
sem mun rífa vélarnar niður og selja í brotajárn og varahluti.
Síðasta áætlunarflugið var flogið sl. föstudag til San Francisco og til baka til Manila í dag þar sem slökkviliðsbílar
heiðruðu vélarnar með vatnsboga en þær voru báðar afhentar til Philippine Airlines árið 1979.
Boeing 777-300ER vélar munu nú sinna fluginu frá Manila til San Francisco.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.