flugfréttir

Malaysian gefur flugmiða og spjaldtölvur í „bucket list“ leik

2. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:00

Flugfloti Malaysia Airlines á flugvellinum í Kuala Lumpur

Malaysia Airlines hefur hrint af stað markaðsherferð og leik í von um að vinna til sína þann farþegafjölda sem félagið hafði áður en það gekk í gegnum tvöfaldar hörmungar í ár.

Í frétt Time.com segir að Malaysia Airlines hafi ákveðið gefa fólki flugmiða með því að ýta úr vör leik eftir að myndir af hálftómum vélum félagsins birtust í síðustu viku sem hafa farið eins og eldur um sinu á vefnum og endurspegla hversu fáir þora að fljúga með félaginu eftir að flug MH370 hvarf í vor og flug MH17 var skotið niður í Úkraínu.

Herferðin, sem nefnist "My Ultimate Bucket List", fór af stað sl . föstudag í Ástralíu og Nýja-Sjálandi þar sem félagið spyr fólk hvaða staðir í heiminum séu á "bucket-listanum" sem er listi sem fólk gerir yfir þá hluti sem það vill gera eða upplifa áður en það deyr en vinningarnir í leiknum er frír flugmiði á Business Class og iPad-spjaldtölvur.

Markaðssérfræðingar áttu von á að Malaysia Airlines myndi hrinda af stað keppni eða leik til að ná til sín farþegum á ný en nafnið, "My Ultimate Bucket List", kom þó þeim á óvart þar sem eflaust eru margir sem telja þetta vera klúðurslega markaðssetningu í ljósi þess að yfir 500 manns hafa látið lífið í hörmungunum tveimur á þessu ári.

Svo virðist sem að tvær grímur hafi runnið á Malaysia Airlines þar sem vefsíðan með markaðsherferðinni liggur niðri og koma þess í stað upp villuskilaboð.

Einnig hefur félagið boðið upp á ótrúlega lág fargjald og kostar t.a.m. aðeins 53 þúsund krónur að fljúga fram og til baka frá Kuala Lumpur til Ástralíu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga