flugfréttir
Köstuðust til vegna ókyrrðar í vél easyJet
Vélin lenti í Róm og töldu flugvirkjar að vélin væri ekki í ástandi til að fara aftur í loftið
Nokkrir farþegar og flugliðar slösuðust um borð í flugvél easyJet eftir að vélin flaug í gegnum heiðkviku á leið frá Gatwick-flugvellinum í London á leið til Napólí.
Farþegar sem voru um borð sögðu að þrjár flugfreyjur hafi tekist á loft og skollið upp í loftið á vélinni
sem olli meðal annars skemmdum á innréttingum en nokkrir farþegar tóku myndir af ummerkjunum og settu
á samfélagsmiðla.
"Flugið hafði gengið snuðrulaust fyrir sig þar til það var kveikt á sætisbeltaljósum. Flestir farþegarnir voru ekki með
sætisólarnar spenntar og skyndilega köstuðust flestir upp úr sætum sínum. - Ferðatöskur köstuðust úr handfarangursgeymslum
og einnig var ungabarn sem tókst á loft", segir einn farþeginn sem var um borð í vélinni.
Flugmenn vélarinnar ákváðu að lenda í Róm en um borð voru 154 farþegar og hefur félagið beðist afsökunar á atvikinu.
Flugvirkjar í Róm skoðuðu vélina og töldu hana ekki vera í flughæfu ástandi og var því ákveðið að ferja alla farþegana
til Napólí með rútum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.