flugfréttir
Samsetning á fyrstu C919 vélinni hefst í lok mánaðarins
Fyrsta einingin af skrokknum á fyrstu C919 tilraunavélinni
Kínverski flugvélaframleiðandinn Comac mun hefja samsetningu á fyrstu C919 tilraunavélinni í lok þessa mánaðar.
Vélin verður sett saman í nýrri verksmiðju Comac nálægt Pudong-flugvellinum í Shanghai og er fyrsta einingin
af skrokk vélarinnar komin í hús sem smíðuð er úr álblöndu en Comac bíður eftir að fá afhentar miðjueininguna og
stélhlutann.
Einnig gerir Comac ráð fyrir að vængirnir verði tilbúnir í haust og verða þeir festir við skrokkinn fyrir lok þess árs en
vængirnir eru enn í smíðum í Xian Aircraft verksmiðjunum.
Li Hu hjá Comac-framleiðandanum segir að samsetningin á farþegaþotu taki yfirleitt um fjóra til fimm mánuði en hann
telur að lengri tíma muni þó taka að setja saman fyrsta eintakið af C919.
Li segir að framleiðandinn muni mögulega fá að nota nýju, fjórðu flugbrautina á Pudong-flugvellinum þegar
prófanir hefjast en þegar er búið að tengja akstursbrautir frá nýju verksmiðjunni að fjórðu og fimmtu flugbrautinni á flugvellinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.