flugfréttir
11 farþegaþotur horfnar í Líbýu
- Óttast að herskáir íslamistar muni nota þær í hryðjuverkaárásir
Flugvöllurinn í Trípólí hefur orðið illa úti eftir árásir sem áttu sér stað í ágúst
Sagt er að herskáair íslamistar séu búnir að stela 11 farþegaþotum á síðustu vikum í Líbýu en bandaríska leyniþjónustan varar við því að þær verði notaðar í hryðjuverkaárásum eins og átti sér stað þann 11. september árið 2001.
Fréttir herma að íslamskir uppreisnarmenn hafi komist yfir flugvélarnar en mikil átök hafa átt sér stað upp á síðkastið
í Líbýu og ófremdarástand og uppsátur hefur verið á flugvellinum í Trópólí.
"Það eru nokkrar farþegaþotur sem saknað er í Líbýu og þann 11. september árið 2001 komumst við að því hvað
hægt er að gera með slíkar vélar", segir í frétt Free Beacon.
Blaðamaðurinn Bill Gertz segir að yfirvöld í Líbýu séu nú að reyna að komast að því hvað varð um þessar farþegaþotur
og hvar þær eru niðurkomnar en þær tilheyra tveimur líbýskum flugfélögum.
Talið er að hryðjuverkasamtökin Libyan Dawn hafi stolið þotunum og hafa stjórnvöld í nágrannalöndunum
verið á varðbergi og t.a.m. hefur Tunis Air hætt að fljúga til Líbýu af ótta við hryðjuverkaárásir með þeim vélum sem hafa horfið og einnig
hafa flugfélög í Egyptalandi fellt niður flug til Líbýu.
"Hver þarf á flugskeytum á að halda ef þú kemst yfir farþegaþotur? - Þótt þær séu tómar en fullar af eldsneyti
þá er eyðileggingarmátturinn alveg jafnmikill", segir Michael Rubin, hryðjuverkasérfræðingur hjá
American Enterprise Institute.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.