flugfréttir
Orðrómur um að Boeing muni hætta að framleiða 747-8
Boeing 747-8 Intercontinental vélin kom á markaðinn árið 2012
Orðrómur er uppi um að Boeing muni tilkynna um endalok framleiðslu á nýju júmbó-þotunni, Boeing 747-8 Intercontinental en mjög dræm sala hefur verið á vélinni.
Bandaríska markaðsfyrirtækið Buckingham Research Group telur að eftirspurning sé ekki næg til að framleiðslan standi undir kostnaði og gera markaðssérfræðingar ráð fyrir að Boeing muni tilkynna um að framleiðslu á vélinni verði hætt.
Aðeins eitt eintak af Boeing 747-8 hefur verið pantað á þessu ári en til þess að framleiðslan standi fyrir sínu með smíði
á 1,5 eintaki á mánuði þarf Boeing að selja 18 slíkar vélar á hverju ári.
Möguleiki er á því að afskastagetan á framleiðslunni verði lækkuð en frekar en það myndi auka framleiðslukostnaðinn
á vélinni.
Sumir sérfræðingar telja að Boeing muni halda framleiðslunni opinni lengur í þeim tilgangi að smíða
nýja Air Force One þotu fyrir forseta Bandaríkjanna en Boeing 747-8 kemur þar sterklega til greina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.