flugfréttir

Hálft ár í dag frá því malasíska farþegaþotan hvarf

8. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 15:16

Boeing 777-200ER vél Malaysia Airlines

Hálft ár er í dag síðan að malasíska farþegaþotan, flug MH370, hvarf yfir Thailands-flóa á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking þann 8. mars í vor.

Um borð í vélinni voru 239 manns og þrátt fyrir eina dýrustu leit sem gerð hefur verið hefur ekkert brak fundið né nein ummerki og hefur hvarfið verið ein stór hulin ráðgáta.

Yfir 30 fjölskyldumeðlimir og ættingjar þeirra sem voru um borð í
flugi MH370 komu saman í dag í Peking

Margir hafa talið það mjög furðuelgt að svona langur tími geti liðið án þess að vélin hafi fundist og sumir furða sig á því hversu lítið hefur verið fjallað um hvarfið að undanförn m.a.v. hversu margar fréttir voru birtar um flug MH370 á fyrstu vikunum í vor.

Ekkert vitað hvað varð af vélinni

Enginn veit hvað varð af vélinni og hafa m.a. verið kenningar um að henni hafi verið rænt og einnig getgátur um að keðjuverkandi bilun hafi grandað henni, loftþrýstingur hafi fallið niður og súrefnisskortur hafi látið alla missa meðvitund og einnig hefur verið talið að hún hafi óvart verið skotin niður af herflugvél.

Aðstandendur þeirra sem voru um borð bíða enn eftir því að fá einhver svör og telja margir að kínversk og malasísk stórnvöld hafi brugðist þeim.

Minningarathöfn fór fram í dag við Lama-hofið í Peking þar sem sex mánuðir eru frá því að vélin hvarf þar sem 30 aðstandendur komu saman.

"Hver einast dagur er pynting en við þjáumst ennþá meira í dag", segir kona að nafni Zhang sem hefur hafist við í Peking síðan að vélin hvarf en dóttir hennar var um borð í flugi MH370.

"Sex mánuðir og við erum ekkert nær sannleikanum og við erum bara í lausu lofti. Fullt af fólki segir við mig "Það eru komnir sex mánuðir. Þú verður að komast yfir þetta og halda sínu striki", segir Jacquita Gonzales, eiginkona Patrick Gomes sem var um borð í vélinni.

Lota númer 2 í leitinni hefst eftir tvær vikur

Eina og sterkasta vísbendingin eru gögn frá Inmarsat-gervitunglinu sem tóku við þeim merkjum sem vélin sendi frá sér á klukkustunda fresti og út frá því hefur verið reiknað út að vélin flaug lengst suður í Suður-Indlandshaf eftir að hafa beygt af áætlaðri flugleið til Peking en fyrst flaug vélin af leið til vesturs út á Andaman-haf.

Áströlsk og malasísk stjórnvöld segjast vera staðráðin í að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að finna vélina og hafa yfirmenn hollenska rannsóknarfyrirtækisins, Fugro Survey, tekið fram að sé vélin á leitarsvæðinu að þá muni hún finnast er þeir hefja leitina núna í september sem gæti tekið heilt ár.

Þess má geta að frá 8. mars í vor hefur Alltumflug.is birt 213 fréttir um flug MH370 sem má skoða hérna







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga