flugfréttir

Fjölmargir hlutir götuðu skrokk flugs MH17 á miklum hraða

- Flugslysasérfræðingar í Hollandi birtu frumskýrsluna í morgun

9. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:51

Hluti af flaki vélarinnar á akri nálægt bænum Hrabove í Úkraínu

Boeing 777 vél Malaysia Airlines, flug MH17, fórst yfir Úkraínu þann 17. júlí sl. eftir að vélin varð fyrir fjölmörgum utanaðkomandi hlutum sem götuðu skrokkinn í miðju flugi yfir átakasvæði í austurhluta landsins með þeim afleiðingum að hún fórst.

Þetta kemur fram í frumskýrslu sem rannsónarnefnd flugslysa í Hollandi birti í morgun en alls voru 298 manns um borð í vélinni og komst engin lífs af.

Næstum því tveir mánuðir eru síðan að vélin fórst nálægt bænum Hrabove í austurhluta Úkraínu á leið sinni frá Amsterdam til Kuala Lumpur en í skýrslunni, sem telur 34 blaðsíður, kemur fram að áhöfnin hafi verið með mikla reynslu ekki hafi verið nein merki um að tæknileg bilun hafi grandað vélinni.

Skýrslan rennir stoðum undir þær tilgátur að vélin hafi orðið fyrir flugskeyti eins og áður hefur komið fram en Úkraína og vestræn lönd hafa sakað rússneska aðskilnaðarsinna um verknaðinn og er talið að vélin hafi verið skotin niður með langdrægum BUK-flugskeytabúnaði.

Hollenskir flugslysasérfræðingar hafa ekki enn geta farið til Úkraínu til að rannsaka vettvanginn vegna ástandsins í landinu en niðurstöður frumskýrslunnar eru byggðar á upplýsingum úr flugrita vélarinnar sem var fluttur til Hollands og einnig hefur verið stuðst við ljósmyndir og myndbönd sem hafa verið tekin á staðnum ásamt gögnum frá úkraínskum flugmálayfirvöldum.

Rannsóknarnefnd flugslysa í Hollandi tók það fram að lokaskýrslan sé væntanleg um mitt árið 2015.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga