flugfréttir
Lítil flugvél hvarf á leið frá Keflavík til Kulusuk
- Átti að lenda kl. 14:00 í gær en skilaði sér aldrei
Flugvöllurinn í Kulusuk á Grænlandi
Lítil flugvél, sem fór í loftið frá Keflavíkurflugvelli, hvarf á leið sinni til Grænlands en vélin átti að lenda í Kulusuk um miðjan dag í gær en vélin lenti ekki á áætluðum tíma og hefur ekkert til hennar spurst.
Ekki kemur fram hverrar tegundar vélin er en hún var erlend og var á leiðinni yfir Atlantshafið og átti hún
að lenda í Kulusuk í gær klukkan 14:00 en skilaði sér aldrei.
Um kvöldmatarleytið hafði ekkert til vélarinnar spurst og hefði eldsneyti hennar verið uppurið
en vélin var í sambandi rétt áður en hún átti að lenda.
Heimildir eru fyrir því að flugmaður vélarinnar sé ekki íslenskur en dönsk flugmálayfirvöld (NaviAir) vilja ekki gefa upp af hversu margir
eru um borð né af hvaða þjóðerni fólkið er.
Slæmt verður hamlaði leit af vélinni í gærkvöldi með þoku og hvassviðri en lét hófst í morgun að vélinni.
Camilla Fences Borg, talsmaður NaviAir, segir að björgunarmenn hafi þó hugmynd um hvert vélin hefði geta flogið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.