flugfréttir
United fyrsta flugfélagið í N-Ameríku til að fá Boeing 787-9
Boeing 787-9 vél United Airlines
United Airlines hefur fengið fyrstu Dreamliner-vélina frá Boeing af lengri gerðinni, Boeing 787-9, en félagið verður fyrsta flugfélagið í Norður-Ameríku til að fljúga 787-9 vélinni.
Vélin mun hefja áætlunarflug í október og mun United nota hana í flugi milli Los Angeles og Melbourne í Ástralíu
en 787-9 vélin getur flogið 720 kílómetrum lengra en þær Boeing 787-8 vélar sem United hefur fengið frá Boeing.
Boeing hefur afhent United Airlines ellefu Boeing 787-8 vélar og á aðeins eftir að afhenda eina slíka til viðbótar
en félagið á von á 25 vélum til viðbótar af gerðinni 787-9 en árið 2018 mun félagið fá lengsta Draumfarann, Boeing 787-10.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.