flugfréttir

Ryanair vonast til að hefja Ameríkuflug á næstu 10 árum

- Flug frá 10 evrum frá Evrópu til Boston og New York

15. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:19

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að félagið stefni á að hefja lágfargjaldaflug til Bandaríkjanna eftir 10 ár en O´Leary segir að ekki sé möguleiki á að Ameríkuflug Ryanair geti hafist fyrr þar sem skortur er á farþegaþotum sem henta til flugsins.

O´Leary segir að félagið sé tilbúið með viðskiptaáætlun fyrir lágfargjaldaflug vestur um haf og kemur til greina að bjóða upp á flug frá allt að 12 til 14 borgum í Evrópu en í augnablikinu er allt stopp á því að réttu flugvélarnar vanta í flotann.

O´Leary segir að hann sjái fyrir sér að flug frá Evrópu til Boston og New York myndi kosta um 10 evrur og til baka fyrir 7 evrur og væri þá flugmiðinn fram og til baka um 2.600 krónur og væri þá um að ræða lægstu verðin og á þá eftir að bætast við aukagjöld og farangur.

"Auðvitað verða ekki öll sætin um borð á 10 evrur og það verða einnig mörg viðskipta- og betri sæti um borð í vélunum sem eru dýrari", segir O´Leary sem tók fram að félagið þyrfti frá 30 til 50 farþegaþotur í Ameríkuflugið.

Michael O´Leary hefur verið framkvæmdarstjóri Ryanair í 20 ár og vonast hann til þess að hann verði enn við stjórnvölin þegar Ameríkuflugið hefst en það verður sennilega ekki að veruleika fyrr en árið 2024.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga