flugfréttir
Kína sektar KLM fyrir að fljúga júmbó-vél með útrunnið lofthæfisskírteini
PH-BFF, Boeing 747-400ER vél KLM Royal Dutch Airlines
Flugmálayfirvöld í Kína hafa sektað hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines um 420.000 krónur fyrir að hafa flogið Boeing 747 vél með útrunnið flughæfisvottorð til landsins.
Þann 5. september sl. gaf CAAC, (Civil Aviation Administration of China), frá sér tilkynningu þar sem segir að þann 12. maí
á þessu ári hafi KLM flogið júmbó-vél frá Amsterdam
til Peking sem flug KL897.
Vélin ber skráninguna PH-BFF og lenti vélin í Peking þann 12. maí en lofthæfisskírteini vélarinnar hafði þá runnið út
fyrir meira en mánuði síðan eða þann 4. apríl.
CAAC segir að KLM Royal Dutch Airlines hafi með því brotið lög Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAO, og lög
kínverskra flugmálayfirvalda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.