flugfréttir
Azul íhugar Boeing 737 MAX eða Airbus A320neo
Embraer-vél Azul Linhas Aéreas
Brasilíska flugfélagið Azul Linhas Aéreas íhugar nú að panta annað hvort Boeing 737 MAX vélina eða A320neo vélina frá Airbus en vélarnar myndu þá leysa af hólmi 30 Embraer-vélar sem félagið hefur í flota sínum núna.
Azul ætlar að bæta við 50 brasilískum borgum inn í leiðarkerfi sitt í innanlandsflugi en þær áætlanir er hluti
af samvinnuverkefni flugfélagsins og brasilísku ríkisstjórnarinnar.
Azul Linhas Aéreas er fjórða stærsta flugfélagið í Suður-Ameríku á eftir LATAM, Gol og Avianca og flýgur félagið
til 104 áfangastaða með 144 farþegaþotum sem eru af gerðinni Airbus A330, Embraer og ATR.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.