flugfréttir

Boeing gerir samning við danskt fyrirtæki um þróun á mannlausu loftfari

16. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:04

Boeing undirritaði samninginn við danska fyrirtækið Sky-Watch í gær

Boeing hefur gert samning við danskt fyrirtæki um aðstoð við þróun og hönnun á nýrri tegund af mannlausu loftfari.

Fyrirtækið, sem Boeing gerði samning við, heitir Sky-Watch og er markmiðið að þróa nýja kynslóð af mannlausu eftirlits- og könnunarloftfari sem mun sameina eiginleika minni flýgilda, sem hefja sig lóðrétt til lofts, og stærri vængjaðra loftfara sem geta flogið langar vegalengdir.

Verkefnið, sem kallast Smart UAV, er einnig styrkt af danska tækniþróunarsjóðnum Danish National Advanced Technology Foundation en einnig hafa fleiri fyrirtæki komið að verkefninu á borð við danska geimvísindastofnunin og umhverfis- og verkfræðiráðuneyti Danmerkur en Boeing mun aðstoða við þróun.

Sky-Watch var stofnað árið 2009 á Jótlandi og mun Boeing
aðstoða fyrirtækið við þróun á nýrri tegund af ómönnuðu loftfari

Boeing undirritaði samninginn við Sky-Watch í gær á flugvellinum í Óðinsvé en danska fyrirtækið hefur m.a framleitt fjarstýrða flýgildið HUGINN X1.

Boeing mun koma að verkefninu er varðar þróun á vængjum fyrir nýja loftfarið en þá mun dótturfélag Boeing, Insitu, koma að þróuninni en það fyrirtæki sérhæfir sig í lausnum á ómönnuðum loftförum.

Smart UAV loftfarið mun geta nýst í ýmsum tilgangi og þ.á.m. í eftirlits- og könnunarflugi, til rannsókna og einnig við eftirlit með landhelgi og á sjó á hafsvæðum á Norðurlöndunum.

Sky-Watch var stofnað árið 2009 og hefur fyrirtækið höfuðstöðvar sínar í bænum Støvring á Jótlandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga