flugfréttir
Flugmenn Lufthansa afturkölluðu verkfallsaðgerðir í dag
Ekki kom til fjórða verkfallsins í dag þar sem flugmenn Lufthansa eiga nú í viðræðum við félagið
Þýska verkalýðsfélagið Vereinigung Cockpit hefur afturkallað frekari verkfallsaðgerðir á vegum flugmanna Lufthansa og kom ekki til verkfalls í dag en búið var að boða til 8 tíma vinnustöðvunnar á flugi um Frankfurt-flugvöllinn.
Flugmenn Lufthansa segja að viðræður fari nú fram við stjórn félagsins en flugmenn fara fram á bættari launakjör
félagsins og breytingar á eftirlaunaaldri.
Ef af verkfallinu hefði orðið hefði allt langflug frá Frankfurt legið niðri en Lufthansa hafði lýst því yfir að félagið
hefði til taks flugmenn til að hlaupa í skarðið ef verkfallsaðgerðirnar hefðu skollið á í dag.
Þess má geta að Lufthansa flýgur til 40 fjarlægra áfangastaða frá Frankfurt með Airbus A380 risaþotum Airbus A330, A340 og júmbó-vélum af gerðinni Boeing 747 og hefur allt flug í dag verið á áætlun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.