flugfréttir
Air Greenland setur allar Dash-7 vélarnar á sölu
De Havilland Canada Dash-7 vél Air Greenland
Air Greenland ætlar sér að setja allar Dash-7 vélarnar sínar á sölu en vélarnar hafa verið notaðar í innanlandsflugi á Grænlandi.
Air Greenland hefur þrjár De Havilland Canada Dash-7 vélar í flota sínum sem hafa flogið milli flugvallana í Aasiaat, Ilulissat, Maniitsoq, Nuuk, Kulusuk, Narsarsuaq og Sisimiut.
Félagið hefur þegar auglýst vélarnar til sölu og er ein vélin laus nú þegar og fæst afhent strax og næsta verður fáanleg
eftir áramót.
Air Greenland hefur einnig fimm Bombardier Dash 8 Q200 vélar í flotanum sem eru notaðar í innalandsflugi, eina Beechcraft B200 King Air sem sinnir
leiguflugi og sjúkraflugi og eina Airbus A330-200 sem er notuð í millilandaflugi til Kaupmannahafnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.