flugfréttir
Sex af hverjum tíu flugferðum falla niður
Á morgun er þriðji dagur verkfallsins hjá flugmönnum Air France
Air France hefur fellt niður sex af hverjum 10 flugferðum á morgun sem verður þriðji dagurinn sem flugmenn félagsins leggja niður störf sín í vikulöngu verkfalli.
Í dag flaug Air France aðeins 40% af þeim flugferðum sem áætlaðar voru og er talið að svipaður fjöldi flugferða verði
farnar einnig á morgun en verkfallið kostar Air France allt að 2.200 milljónir króna á dag.
Verkfallið hefur lamað flugsamgöngur um Frakkland og hefur Air France hvatt farþega til að fresta fluginu sína, endurbóka og
breyta fluginu að kostnaðarlausu eða fá endurgreitt.
Flugmenn Air France eru óánægðir með áætlanir félagsins um að tvöfalda umsvif dótturflugfélagsins Transiavia þar
sem þeir óttast um að það muni verða til þess að þeir missi vinnu sína þar sem félagið ætlar að færa umsvif frá Air France
yfir til Transavia.
Verkfallið hefur ekki áhrif á dótturfélagið HOP! né systurfélagið KLM Royal Dutch Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.