flugfréttir

Lufthansa Group pantar 25 þotur fyrir Swiss og Eurowings

- Swiss fær 15 A320neo vélar og Eurowings tíu A320

17. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:44

Tölvugerð mynd af Airbus A320neo í litum Swiss International Air Liness

Lufthansa Group hefur lagt inn pöntun til Airbus í 25 farþegaþotur fyrir dótturflugfélögin tvö, Swiss International Air Lines og Eurowings.

Pantaðar voru 15 Airbus A320neo vélar fyrir Swiss International Air Lines sem munu leysa eldri Airbus A320 vélar flugfélagsins svissneska af hólmi en Nico Buchholz hjá Lufthansa Group segir að A320neo vélin henti best fyrir framtíðarstefnu félagsins hvað varðar endurnýjun á sparneytnari flugflota.

Swiss hefur 66 farþegaþotur sem allar eru frá Airbus en flotinn samanstendur af vélum af gerðinni A319, A320, A321, A330-300 og Airbus A340-300 en félagið á von á sinni fyrstu Boeing 777-300ER árið 2016.

Pöntun Swiss International Air Lines í A320neo vélarnar fimmtán er metin á 182 milljarða króna.

Bombardier CRJ900 vél Eurowings

Eurowings fær tíu Airbus A320 vélar

Þá pantaði Lufthansa Group 10 hefðbundnar Airbus A320 vélar fyrir Eurowings sem er hluti að nýrri lágfargjaldarstarfsemi Lufthansa innan Evrópu.

Lufthansa mun einnig færa þrettán A320 vélar yfir til Eurowings á næst ári þar sem til stendur að auka umsvif félagsins í lágfargjaldarflugi frá áfangastöðum utan Þýskalands en Lufthansa Group hefur látið dótturfélagið, Germanwings, sjá um lágfargjaldaflug frá Þýskalandi.

Eurowings hefur í dag eingöngu Bombardier CRJ900 vélar í flota sínum en Lufthansa segir að þær henti ekki fyrir þau umsvif sem framundan eru sem hefjast á næsta ári og verður fyrsta bækistöðin Eurowings staðsett í Basel í Þýskalandi.

Pöntun Lufthansa er metin á 384 milljarða króna fyrir vélarnar tuttugu of fimm.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga