flugfréttir

Einn yngsti flugmaður Bretlands hefur störf fyrir British Airways

- Jonathan Irwin er 21 árs og mun fljúga Airbus A320 frá Gatwick til Evrópu

18. september 2014

|

Frétt skrifuð kl. 21:11

Jonathan Irwin, er einn yngsti atvinnuflugmaður Bretlands

Jonathan Irwin er einn yngsti atvinnuflugmaður Bretlands en Irwin, sem er 21 árs, var nýlega boðið starf sem flugmaður hjá British Airways.

Irwin er nýorðin aðstoðarflugmaður á Airbus A320 hjá BA og mun hann á næstunni byrja að fljúga á styttri flugleiðum til meginlands Evrópu frá Gatwick-flugvelli.

Fjölskylda Irwin segir að það hafi verið draumur hans að fljúga síðan hann var 11 ára gamall og byrjaði hann flugnám sitt 16 ára að aldri með því að læra á svifflugvél.

Paul, faðir Irwin, segir að nú sé draumurinn hjá syni sínum að verða kapteinn. "Við erum ekki nein flugfjölskylda og fáir með áhuga fyrir flugi í fjölskyldunni. Hann hefur gert þetta á eigin spýtur og elskar starfið sitt", segir Paul.

"Við erum í skýjunum fyrir hans hönd. Hann hefur unnið mjög hart að þessu og það er þess virði að elta drauma sína og gaman að sjá hversu ánægður hann er".

Samkvæmt breskum lögum þarf flugmaður að ná 18 ára aldri til að verða atvinnuflugmaður en aðeins er ár síðan að hinn 19 ára Ryan Irwin komst í fréttirnar eftir að hafa landað starfi sem flugmaður hjá Ryanair en sá hafði lagt stund á flugnám hjá Oxford Aviation Academy.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga