flugfréttir
Flugumferð yfir Jótlandi lamaðist eftir að grafa sleit í sundur kapal
Nokkrar flugvélar, sem áttu að lenda í Billund, þurftu að lenda í Kaupmannahöfn í gærkvöldi
Flugumferðin um flugvelli á Jótlandi lamaðist í nótt eftir að grafa frá danska fjarskiptafyrirtækinu TDC sleit í sundur kapal með þeim afleiðingum að flugumferðarstjórnin á Jótlandi varð sambandslaus.
Allur radar undir 5.000 fetum rofnaði og ekkert samband var í flugturninum á flugvellinum í Billund og þurftu vélar
að lenda á Kastrup-flugvellinum í nótt.
Atvikið átti sér stað um tíuleytið í gærkvöld og var samband komið aftur á skömmu fyrir klukkan 1 í nótt
og biðu þær flugvélar, sem höfðu lent á Kastrup, í Kaupmannahöfn áður en þær flugu að lokum yfir til Billund.
Bo Pedersen, talsmaður dönsku flugmálastjórnarinnar Naviair, segir atvikið hefði geta gerst á mun verri tíma.
Aðspurður hvort að ekki sé varakerfi til staðar segir Pedersen að svo sé í rauninni en þarna hafi aðalstrengurinn
inn í flugturninn farið í sundur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.