flugfréttir

Telja að MH370 hafi lækkað flugið aflíðandi til vinstri ofan í sjóinn

- Sjö mánuðir frá því að malasíska farþegaþotan hvarf

8. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:51

Gult er forgangsleitarsvæði sem leitarskip munu einblína á næstu mánuðina

Samgönguöryggisnefnd Ástralíu (ATSB) hefur sent frá sér nýja tilkynningu með upplýsingum yfir nýjustu greiningar sem gerðar hefur verið á mögulegri flugleið sem talið er að flug MH370 hafi flogið áður en hún fórst í Suður-Indlandshafi.

Rannsóknaraðilar í Ástralíu tilkynntu í morgun að forgangsleitarsvæðið muni færast eilítið sunnar þar sem talið er að vélin hafi lækkað flugið í aflíðandi boga áður en hún hrapaði í sjóinn og því mögulega náð að haldast lengur á lofti.

Flugslysasérfræðingar ásamt fleiri rannsóknaraðilum eru sífellt að vinna að því að reikna út nákvæmari flugleið og setja upp reiknilíkan varðandi fluglag vélarinnar og hvert hún gæti hafa flogið en einu rökstuddu upplýsingarnar og sönnungargögnin sem eru fyrir hendi eru gervitunglaupplýsingar.

Möguleg stefna MH370 m.a.v. flughæð

Flug MH370 svaraði gervitunglinu Inmarsat-3 sjö sinnum á klukkustunda fresti frá því vélin hvarf af ratsjá en í áttunda skiptið reyndi fjarskiptabúnaður vélarinnar að skrá sig aftur inn á gervitunglið sjö mínútum síðar og telja sérfræðingar að þar sé um það augnablik að ræða er eldsneytið var á þrotum.

Aðstæðurnar voru sviðsettar í flughermi hjá Boeing

Reiknilíkön hafa verið gerð og starfsmenn og sérfræðingar hjá Boeing hafa sviðsett aðstæðurnar í Boeing 777 flughermum til að átta sig á aðstæðum en í flughermi stöðvaðist hægri hreyfillinn fyrst áður en vinstri hreyfillinn hætti að snúast en vélin sveif áfram, lækkaði flugið og sveigði aflíðandi til vinstri á leið sinni niður áður en hún fór ofan í hafið.

Í tilkynningunni frá ATSB segir að þegar allar nýjustu greiningar eru bornar saman við útreikninga og reiknilíkön og sviðsetningu úr flughermi, þá bendi allt til þess að malasíska farþegaþotan hafi farið ofan í sjóinn mjög nálægt sjöunda hringboganum svokallaða.

7 mánuðir eru í dag frá því að vélin hvarf þann 8. mars í vor á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking en dulin ráðgáta er hvers vegna vélin beygði af leið til vesturs og svo til suðurs en gögn frá gervitunglum benda til þess að vélin flaug í margarg klukkustundir niður í Suður-Indlandshaf þar til eldsneytið var uppurið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga