flugfréttir
Er Air India að rífa í sundur 2 ára gamla Dreamliner-vél?
VT-ANI er þriðja Dreamliner-vélin sem Air India tók á móti árið 2012 en hún hefur ekki flogið nú í hálft ár
Orðrómur er uppi um að Air India sé að rífa í sundur Dreamliner-vél úr flotanum en ef svo reynist vera rétt er um að ræða 2 ára gamla vél.
VT-ANI, var smíðuð árið 2012 og var henni ýtt út úr samsetningu í Everett þann 27. apríl það árið og afhent í október um haustið en þetta er þriðja Boeing 787-8 vélin sem Boeing afhenti Air India og Dreamliner-vél númer 46 sem Boeing smíðaði.
Air India hefur tekið við 17 Dreamliner-vélum frá Boeing og á félagið 10 vélar en sjö hafa verið seldar og leigðar til baka
en VT-ANI hefur verið tekin úr umferð.
Hefur ekki sést í áætlunarflugi í hálft ár
VT-ANI var notuð í áætlunarflug til Ástralíu, London og Frankfurt en í apríl í vor hvarf hún úr leiðarkerfinu og hafa margir
flugáhugamenn rætt um hvað varð um vélina.
Air India hefur átt í miklum rekstarerfiðleikum en Alltumflug.is greindi frá því í mars er félagið byrjaði að rífa niður
4 ára gamla Boeing 777 vél til að nálgast varahluti en sú vél, VT-ALH, var smíðuð árið 2009.
Samkvæmt vefmiðlinum Bangalore Aviation virðist vera að Air India sé fyrsta flugfélagið í heiminum til að
rífa niður Dreamliner-vél en lágmarkslíftími vélarinnar er um aldarfjórðungur.
Misskiptar skoðanir eru þó um hvort að verið sé að rífa niður vélina eða nálgast varahluti úr henni til að gera við aðrar Dreamliner-vélar með það að leiðarljósi að koma vélinni aftur í flughæft ástand síðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.