flugfréttir
A350-900 fær fjarflugsleyfi fyrir allt að 370 mínútna ETOPS
Airbus A350-900 vélin mun fá leyfi til að fljúga í allt að 6:10 klukkustunda fjarlægð frá næsta flugvelli
Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur samþykkt lengra fjarflugsleyfi (ETOPS) fyrir Airbus A350-900 vélina upp í allt að 300 mínútur og í mesta lagi 370 mínútur sem er þó háð flugrekstraraðila og skilyrðum.
ETOPS er stuðull sem segir til um leyfi hversu langt fjölhreyfla þotur mega fljúga í burtu frá næsta flugvelli en af öryggisástæðum er krafist þess að vélar sem t.a.m. fara yfir úthöf séu alltaf innan ákveðinnar hámarksfjarlægðar frá einhverjum flugvelli ef eitthvað skyldi út af bregða eða ef neyðarástand kemur upp.
Núverandi fjarflugsleyfi A350-900 vélarinnar eru 180 mínútur sem þýðir vélin hefur leyfi til að fljúga í allt að 3 klukkutíma fjarlægð frá næsta viðurkennda flugvelli.
Airbus A350-900 vélin er fyrsta farþegaþotan sem hlýtur þann heiður að fá hærra fjarflugsleyfi en 180 mínútur áður en
hún fer í umferð en enn er ekki búið að afhenda fyrstu vélina og hingað til hafa nýjar vélar þurft að sanna gildi sitt
áður en leyfið er hækkað.
Beinna flug milli áfangastaða yfir úthöf
Þetta þýðir að A350-900 vélin getur flogið beinni flugleið heimsálfa á milli án þess að halda sig við nærliggjandi flugvelli
sem þýðir verulega sparneytni fyrir flugfélögin.
Með 370 mínútna fjarflugsleyfi má A350-900 vélin fljúga í 6 klukkustunda og 10 mínútna fjarlægð frá næsta flugvelli
sem jafngildir 4.630 kílómetrum.
370 mínútna ETOPS mun meðal annars koma sér vél í flugi milli Ástralíu og Afríku og einnig til Suður-Ameríku og ETOPS 300 mun nýtast vel fyrir þau flugfélög sem fljúga t.a.m. milli Suðaustur-Asíu og Bandaríkjanna.
Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) veitti Airbus vottun fyrir A350-900 vélinni þann 30. september sl. og er vélin því tilbúin
til afhendingar en Qatar Airways verður fyrsta félagið til að fá fyrsta eintakið af vélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.