flugfréttir
Heathrow Airport Holdings ætlar að selja þrjá flugvelli
Frá Heathrow-flugvellinum í London
Heathrow Airport Holdings Limited, eignarhaldsfélag Heathrow-flugvallar, ætlar sér að selja allan hlut sinn í þremur flugvöllum sem eru flugvellirnir í Aberdeen, Glasgow og Southampton.
Kaupandinn er hópur fjárfesta á vegum Ferrovial og Macquarie og er kaupverðið
á flugvöllunum þremur um 202 milljarðar króna en Evrópusambandið á þó eftir að samþykkja viðskiptin.
John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow þakkaði starfsfólki sínu á flugvöllunum í Aberdeen, Glasgow og í Southampton fyrir samstarfið en framundan er að betrumbæta Heathrow eftir að flugvellirnir þrír eru ekki lengur
í rekstri fyrirtækisins og er stefnt að því að fá aukin stuðning fyrir stækkun Heathrow-flugvallar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.