flugfréttir
Embraer byrjar að framleiða fyrstu íhlutina í nýju E2-vélina
Afhendingar á Embraer E2 vélinni munu hefjast árið 2018
Embraer hefur hafist handa við að smíða fyrstu eininguna í nýju E2 vélina sem mun koma til með að verða arftaki E-vélarinnar.
Byrjað var að skera út fyrsta málmhlutann í fremra þrýstingsþilið sem markar upphafið að framleiðslu vélarinnar
í nýju verksmiðjum Embraer sem staðsettar eru í Evora í Portúgal.
Þaðan verður fyrsti hlutinn sendur til São José dos Campos í Brasilíu þar sem samsetning vélarinnar fer fram
en Embraer opnaði verksmiðjuna í Evora árið 2012 en þar verða margir íhlutir í vélina framleiddir.
Embraer tilkynntu um nýju E2 vélina á flugsýningunni í París árið 2011 en vélin mun koma með nýrri kynslóð
af hreyflum auk þess sem vængir vélarinnar verða endurhannaðir
Borist hafa pantanir í 270 eintök af E2 vélinni sem kemur í þremur útgáfum en fyrsta vélin, E-190 E2 verður flogið árið 2016 og kemur hún á markaðinn árið 2018.
Afhendingar á E-195 E2 hefjast árið 2019 og E-175 E2 kemur á markaðinn árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.