flugfréttir

Flugfélögin lækka ekki fargjöld þrátt fyrir lækkandi þotueldsneytisverð

- Allt að 23 prósenta lækkun á Jet A-1 á tveimur árum

18. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 21:49

Verð á tunnu af Jet A-1 þotueldsneyti (Jet, FOB Rotterdam Barge) / Upplýsingar: http://www.platts.com/jetfuel

Þotueldsneyti hefur lækkað töluvert í verði sl. misseri en flugfélögin hafa þó ekki lækkað eldsneytisgjöld í farmiðaverði í samræmi við lækkun á heimsmarkaði.

Scandinavian Airlines (SAS) hefur viðhaldið sama eldsneytisgjaldi þótt að heimsmarkaðsverð á þotueldsneyti hafi lækkað á síðustu mánuðum og það sama má segja um flugfélögin vestanhafs, Emirates og Qantas í Ástralíu.

Verð á þotueldsneyti hefur lækkað um 23% á síðustu tveimur og hálfa ári og eru því líkur á að umræða fari aftur í gang varðandi verðlag á flugfargjöldum en margir erlendir fréttamiðlar hafa í þessum mánuði og í september sl. fjallað um lækkun á eldsneyti, olíu og þ.á.m. þotueldsneyti.

Eins og sést er um tölvuverða lækkun að ræða á
þotueldsneyti frá 19. september sl.

Í dag kostar líterinn af Jet A-1 þotueldsneyti 154 krónur á Kastrup-flugvellinum í Kaupmannahöfn hjá Statoil sem er 17 prósent lægra en fyrir ári síðan er literinn kostaði 180 krónur.

Í dag er eldsneytisgjald á hvern farþega í Atlantshafsflugi hjá SAS til Norður-Ameríku um 21.700 krónur á hvern farþega, um 6.500 krónur í Evrópuflugi og 3.800 krónur í innanlandflugi í Danmörku.

"Þótt að verð á þotueldsneyti hafi lækkað þá hefur sænska krónan veikst gagnvart bandaríkjadollaranum sem vegur upp á móti niðursveiflu á eldsneytisverðinu", segir Anna Nielsen, talsmaður SAS.

Á vefnum Check-in.dk kemur fram að slíkur útreikningar standist þó ekki þar sem sænska krónan hefur aðeins veikst um 7% gagnvart bandaríkjadollara frá því í apríl árið 2012 á meðan þotueldsneytið hefur lækkað um 23 prósent.

Flugfélögin undir pressu að lækka flugfargjöld

Flest flugfélög hafa verið undir pressu sl. fjóra mánuði um að lækka fargjöld í samræmi við lækkun á bensín- og olíuverði á heimsmarkaði.

"Þótt að verð á þotueldsneyti hafi lækkað þá erum við ekki að sjá nein flugfélög lækka fargjöld - Eftir þann slæma tíma sem þau hafa gengið í gegnum þá er enginn sem öfundar þau þótt þau sjái loksins fram á að ná fram auknum hagnaði loksins", segir talsmaður útflutningsfyrirtækis í olíuiðnaðinum.

"Sagan hefur sýnt sig að flugfélögin eru fljót að hækka eldsneytisgjöld í samræmi við heimsmarkaðshækkun en mjög lengi að lækka fargjöld þegar heimsmarkaðsverðið lækkar.

Í Asíu hefur tunnan af Jet A-1 þotueldsneyti lækkað úr 125 bandaríkjadölum niður í 103 dali frá því í júní í sumar og Qantas tekur í sama steng og SAS og segir að Ástralíudollarinn sé enn veikur gagnvart Bandaríkjadollaranum þrátt fyrir að lækkunin á þotueldsneyti sé mun meiri en gengi gjaldmiðlanna.

Fyrir um einu og hálfu ári síðan var algengt að innkaup á þotueldsneyti var farið að nema allt að 50% af heildarrekstrarkostnaðinum hjá mörgum flugfélögum.

Sérfræðingar vara þó við lækkandi verði á þotueldsneyti og segja að því lægra sem verð á olíu og bensíni fellur, þeim mun meiri skellur verður það þegar hækkunin byrjar aftur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga