flugfréttir
Fyrsta farþegaþotan sem smíðuð er í Japan frumsýnd
- Mitsubishi Regional Jet (MRJ) mun koma á markaðinn árið 2017
Mitsubishi Regional Jet (MRJ) er fyrsta fareþegaþotan sem smíðuð er í Japan
Brotið var blað í japanskri flugvélasmíði er Mitsubishi Aircraft frumsýndi í gær fyrstu Mitsubishi Regional Jet (MRJ) tilraunavélina að viðstöddu fjölmenni.
Vélin ber raðnúmerið 10001 og er Mitsubishi Aircraft á undan áætlun með framleiðsluna en fyrsta tilraunaflugið
er áætlað næsta vor.
Um 500 gestir báru vélina augum í gær í Komaki South verksmiðju Mitsubishi Heavy Industries í Nagoya en meðal
gesta voru embættismenn, ráðamenn, blaðamenn, birgjar og viðskiptavinir ásamt öðrum gestum.
Fyrsta eintakið kemur í sportlegum litabúningi með rauðum, svörtum og gylltum röndum og er vélin knúin áfram
með tveimur PW1200G hreyflum frá Pratt & Whitney.
Mitsubishi Aircraft hefur fengið pantanir í 375 eintök af Mitsubishi Regional Jet (MRJ) vélinni
Þetta er fyrsta farþegaþotan sem smíðuð er í Japan en á sjötta áratugnum kom Nihon Aircraft með NAMC YS-11 á markaðinn sem var tveggja hreyfla skrúfuvél sem var smíðuð í 180 eintökum til ársins 1974.
Mitsubishi mun nota alls sjö tilraunavélar fyrir flugprófanir, fimm fyrir prófanir í flugi og tvær fyrir prófanir á jörðu niðri en önnur og þriðja vélin eru nú komnar í lokasamsetningu.
Alls hafa verið pantaðar 375 eintök af MRJ vélinni sem mun koma í tveimur útgáfum, MRJ 70 sem tekur 78
farþega í sæti og lengri útgáfan, MRJ 90, sem tekur 92 farþega.
Mitsubishi Regional Jet (MRJ) kemur á markaðinn árið 2017 eða ári áður en samkeppnisaðilinn, Embraer, kemur
á markaðinn með E2 vélina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.