flugfréttir

22 á sjúkrahús eftir mikla ókyrrð um borð í A380

bombay

19. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 19:13

Vélin var að lækka flugið í átt að Bombay og var hálftími í lendingu þegar ókyrrðin reið yfir

22 slösuðust um borð í Airbus A380 risaþotu Singapore Airlines eftir að hún flaug í gegnum ókyrrð á leið sinni frá Singapore til Bombay í gær.

408 farþegar voru um borð í vélinni og 25 manna áhöfn en átta farþegar og fjórtán flugliðar slösuðust og þurftu þeir að gangast undir læknisskoðun við komuna til Bombay.

Skemmdirnar um borð í vélinni

Fregnir hafa ekki borist af því hversu alvarleg meiðslin voru en 10 af þeim 14 áhafnarmeðlimum, sem voru um borð, voru fluttir á sjúkrahús en hafa allir verið útskrifaðir. Allir átta farþegarnir voru einnig fluttir á sjúkrahús en tveir þeirra hafa ekki verið útskrifaðir enn.

Samkvæmt vefsíðunni Bangalore Aviation kemur fram að ekki er vitað hvort að Singapore Airlines muni senda aðra áhöfn til Bombay eða hvort sama áhöfnin muni fljúga til baka en vélin, sem ber skráninguna 9V-SKJ, flaug ekki til baka flug SQ423 frá BOM til SIN eins og áætlað var.

Skemmdir urðu einnig á innréttingum vélarinnar eftir atvikið og má hér að neðan sjá ljósmyndir af tjóninu sem vélin varð fyrir en flugvirkjar Singapore Airlines munu gera við skemmdirnar og er unnið af því að þrífa vélina að innan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga