flugfréttir

Nýjar myndir: Fjölbreytt flóra af nýjum vélum á Paine Field

19. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 23:21

Á Paine Field flugvellinum í Washington í Bandaríkjunum má sjá þær nýju farþegaþotur sem búið er að setja saman hjá Boeing, gangast undir prófanir og bíða afhendinga.

Á meðfylgjandi myndum má sjá m.a. fyrstu Dreamliner-vélina fyrir lágfargjaldafélagið Scoot sem er dótturfélag Singapore Airlines (9V-OJA) sem er Dreamliner-vél númer 240 sem smíðuð hefur verið frá upphafi en hún afhendist til félagsins þann 15. desember.

Myndirnar voru teknar í síðustu viku og má einnig sjá tilraunaframhluta af Boeing KC-46 Pegasus vél bandaríska flughersins og í bakgrunni sést í fyrstu Boeing 787-8 vélina fyrir Azerbaijan Airlines sem verið er að undirbúa fyrir tilraunaflug en hún verður afhent þann 28. nóvember.

Hér má sjá Boeing 747-8 Intercontinental vél Air China (B-2487) koma til baka úr flugprófunum í vikunni en félagið hefur fengið fyrstu júmbó-þotuna afhenta (747-8) og á von á að fá þrjár til viðbótar á þessu ári og aðrar þrjár árið 2015.

Mikið úrval af nýjum vélum sem bíða afhendinga - Dreamliner-vélar fyrir Qatar Airways, LAN Airlines, tvær vélar fyrir Royal Jordanian, Ethiopian Airlines, Boeing 777-300ER vélar fyrir China Airlines og Cathay Pacific, Boeing 747-8F fyrir Nippon Cargo og fleiri





Fyrsta Dreamliner-vélin fyrir Avianca (ZA665) færð yfir á "Stall 120". Verður afhent 31. október

Boeing 747-8F fyrir Nippon Cargo Airlines (N783BA - verður skráð sem JA18KZ) kemur til baka úr flugprófunum

Boeing 777-300ER fyrir China Eastern Airlines (B-2002) lendir á Paine Field eftir að hafa verið máluð í Portland

Fyrsta Dreamliner-vélin fyrir Royal Jordanian (JY-BAC) á leið í flug með aðila frá flugfélaginu fyrir afhendingarflugið.

Starfsmenn í Boeing 747 deildinni á leið til baka eftir að hafa framkvæmt prófanir á hreyfli á Boeing 747-8F fraktvél.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga