flugfréttir
5 metra langur flapsi losnaði af Boeing 747 - Fannst í skógi nálægt Frankfurt-flugvelli
Flapsinn fannst í Stadtwald-skóginum í um 8 kílómetra fjarlægð frá flugvellinum
Júmbó-fraktvél frá Korean Air Cargo af gerðinni Boeing 747-400F missti hluta af flapsa er hún var í aðfluginu að flugvellinum í Frankfurt þann 8. október sl.
Vélin, sem hefur skráninguna HL7400, var að lenda í Frankfurt eftir fraktflug frá Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu
þegar hluti af flapsa féll til jarðar en það uppgötvaðist ekki fyrr en á flugvellinum eftir að vélin lenti.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Þýskalandi rannsakar nú atvikið en vélin gat ekki flogið aftur til Seoul fyrr en hún var ferjuð
þangað þann 13. október.
Hluturinn, sem losnaði af væng vélarinnar, fannst ekki fyrr en sl. miðvikudag (15. október) í skógi nálægt flugvellinum
en flapsinn er 1 x 5 metrar á stærð og er um að ræða innri afturbrún flapsans sem dregst út nær búknum.
Maður í samanburði við stærð flapsanna á Boeing 747
Vélin sem um ræðir, HL7400
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.