flugfréttir
Frankfurt verður fyrsti flugvöllurinn til að fá A350 í áætlunarflugi
- Qatar Airways mun skipta út Dreamliner-vélinni fyrir A350-900 í janúar
Fyrsta Airbus A350-900 vél Qatar Airways mun hefja áætlunarflug til Frankfurt um miðjan janúar
Flugvöllurinn í Frankfurt í Þýskalandi (FRA) verður fyrsti flugvöllurinn í heimi til að taka á móti fyrstu Airbus A350 vélinni í áætlunarflugi.
Qatar Airways tilkynnti í dag að flugfélagið sé búið að velja Frankfurt sem fyrsta áfangastaðinn sem A350 vélinni
verður flogið til en félagið verður fyrsta félagið til að nota nýju A350-900 vélina í farþegaflugi.
Ekki hefur verið gefin út staðfest dagsetning en sennilegt er að það verði um miðjan janúar en Qatar Airways
flýgur tvisvar á dag milli Doha og Frankfurt og mun A350 vélin taka við af Dreamliner-vélinni sem hefur flogið það flug hingað til.
Um borð í A350 vél Qatar Airways
Airbus A350-900 vél Qatar Airways tekur 283 farþega í sæti en félagið hefur pantað 80 slíkar vélar frá Airbus
og á von á að fá átta afhentar árið 2015.
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, segir að Perth í Ástralíu muni einnig eiga von á að fá Airbus A350 vélina
til sín í farþegaflugi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.