flugfréttir
Alþjóðadagur flugumferðarstjóra í dag
Flugumferðarstjóri að störfum
Alþjóðadagur flugumferðarstjóra er í dag, 20. október, og er deginum fagnað af fjölmörgum samtökum flugumferðarstjóra um víða veröld og þar á meðal af Alþjóðasamtökum félagasamtaka flugumferðarstjóra (IFATCA).
Alþjóðadagur flugumferðarstjóra hefur verið haldin 20. október þar sem samtökin
International Federation of Air Traffic Controllers (IFATCA) voru stofnuð á þessum degi í Amsterdam
árið 1961 en samtökin fögnuðu hálfrar aldar afmæli árið 2011.
Flugumferðarstjórar gegna einu ábyrgðarmesta starfi í heimi en bara í Bandaríkjunum starfa
yfir 26 þúsund flugumferðarstjórar sem sjá til þess að um 80 þúsund flugvélar komist leiðar
sinnar á öruggan hátt á hverjum degi.
Alþjóðadegi flugumferðarstjóra er fagnað t.a.m. á Fésbókarsíðunni Air Traffic Controllers Around the World.
Úr flugturninum á Heathrow-flugvelli
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.