flugfréttir

Flugstjóri hjá SAS gefur út flughræðslu-app

21. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 06:57

Ulrik Pedersen er flugmaður hjá SAS og á einnig og rekur flughræðsluskólann Flytryg

Danir sem haldnir eru flughræðslu og eru á leið í flug geta andað léttar þar sem nýtt flughræðslu-app er komið á markaðinn þar í landi en smáforritið var þróað af flugmanni hjá SAS (Scandinavian Airlines).

Flugmaðurinn Ulrik Pedersen þróaði smáforritið sem kallast Flytryg en Ulrik hefur haldið námskeið fyrir fólk með flughræðslu frá því á níunda áratugnum en nú hefur hann gefið út "app" sem aðstoðar fólk við að vinna bug á flughræðslunni og þá sem er smeykir við að fljúga.

Sálfræðingurinn Torben Kjeldsen, útskýrir flughræðslu í myndbandi sem sjá má hér að neðan

Með Flytryg-smáforritinu má nálgast 25 kennslu- og fræðslumyndbönd, slökunaræfingar, lista yfir mismunandi flugvélategundur ásamt skýringarmyndum varðandi hverja vél og getur viðkomandi fræðst um þá hluta vélarinnar sem fyrir augu ber líkt og vænglinga, flapsa, vængbörð ("slats") og þau hljóð sem heyrast í vélinni.

Sumir róa taugarnar með áfengi

Flughræðsla er oft fólgin í andlegum viðbrögðum og ótta við kringumstæður sem einstaklingurinn ræður ekki við og hræðslu við hið óþekkta sem er í gangi þegar viðkomandi er í flugvél.

Sálfræðingurinn Torben Kjeldsen, sem kemur einnig við sögu í smáforritinu, segir að stór hluti farþega noti áfengi til að róa taugarnar en það getur oft verið verra og betri aðferð að verða sér út um kunnáttu til að ná tökum á hræðslunni.

Flytryg er fáanlegt á Apple Store og Google Play og kostar það um 45 krónur danskar eða sem samsvarar 922 krónum en smáforrið er að vísu einungis fáanlegt á dönsku.

Ulrik Pedersen hefur flogið hjá SAS frá árinu 1990 og flýgur á Airbus A319, A320 og A321 en einnig hefur hann flogið McDonnell Douglas MD-80 vélunum, DC-9, Boeing 767 og Boeing 737.

Hér að neðan má sjá nokkur myndbönd af vefsíðunni flytryg.dk þar sem Ulrik og Torben fræða fólk um flugvélar og flughræðslu.

Myndband: 1



Myndband: 2



Myndband: 3







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga