flugfréttir

Ljósmyndin frá fyrsta Sydney-fluginu endurgerð 40 árum síðar

- Cathay Pacific fagnar 40 ára flugafmæli milli Sydney og Hong Kong

21. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 11:09

40 ár eru síðan að Hal Dyball flaug fyrsta flugið milli Sydney og Hong Kong

Cathay Pacific fagnar í dag 40 ára flugi milli Sydney og Hong Kong en flugleiðin er ein sú annasamasta milli Ástralíu og Asíu.

Cathay Pacific flaug fyrst milli Hong Kong og Sydney þann 21. október árið 1974 og var þá flogið þrisvar í viku með Boeing 707 vélum en í dag er flogið fjórum sinnum á dag milli Chek Lap Kok (HKG) og Kingsford-Smith (SYD) flugvallanna með Airbus A330.

Iris Lim er önnur til vinstri á myndinni

Hal Dyball flugstjóri flaug fyrsta flugið til Sydney og varð hann andlit flugfélagsins í auglýsingum sem gerðar voru og segir Dyball að hann hafi séð sjálfan sig út um alla Sydney á þeim tíma.

"Ég gat ekki farið í bíóhús nema sjá mig í auglýsingum og einnig voru plakköt með mynd af mér á öllum ferðaskrifstofum um alla Sydney", segir Dyball.

Iris Lim, flugfreyja sem flaug fyrstu flugferðirnar milli Sydney og Hong Kong, segir að fyrir tíma afþreyingarefnis og sjónvarpsskjáa voru farþegum færðir spilastokkar, sígarettur og eðalvín til að skemmta þeim um borð.

"Við vorum að matreiða lambahrygg fyrir farþega á fyrsta farrými sem gat verið soldil kúnst og við þurfum að bera þetta fram til farþega mjög fagmannlega - þetta sér maður ekki í dag", segir Lim sem er ekki flugfreyja lengur en vinnur þó enn hjá Cathay Pacific í búningadeildinni.

Dyball flugstjóri starfar ekki lengur hjá félaginu en er enn að fljúga og vinnur fyrir Angel Flight samtökin sem fljúga sjúkraflug með fólk sem býr á afskektum svæðum í Ástralíu sem þarf á læknisaðstoð að halda.

Cathay Pacific flaug fyrsta flugið til Sydney með Boeing 707

Dyball sést hér að neðan á gamalli ljósmynd sem tekin var sem hluti af auglýsingaherferð en þessi ljósmynd var endurgerð á dögunum, nú 40 árum síðar þar sem Dyball hefur elst eitthvað örlítið en flugfreyjur Cathay Pacific virðast samt jafnungar.





Í dag er flogið fjórum sinnum á dag milli Hong Kong og Sydney







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga