flugfréttir

Ölvaður snjómokstursbílsjóri ók í veg fyrir einkaþotu í flugtaki í Moskvu

- Forstjóri olíurisans Total lést í slysinu ásamt þremur áhafnarmeðlimum

21. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:41

Einkaþotan var í flugtaki á Vnukovo-flugvellinum í Moskvu sl. mánudagskvöld þegar snjómoksturstæki ók í veg fyrir vélina

Fjórir létust í flugslysi í Moskvu sl. mánudagskvöld er einkaþota í flugtaki klessti á snjómoksturstæki sem var að ryðja flugbrautina en fréttir herma að ökumaður snjómoksturstækisins hafi verið ölvaður.

Um borð var Christophe de Margerie, framkvæmdarstjóri Total, sem er sjötta stærsta olíufyrirtæki í heimi en hann lést í slysinu en einnig voru þrír í áhöfn vélarinnar um borð og komst enginn lífs af.

Vélin var í flugtaki á leið til Parísar rétt fyrir miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins þegar einkaþotan, sem var af gerðinni Falcon 50, rakst utan í snjómoksturstækið.

Christophe de Margerie, framkvæmdarstjóri Total, lést í slysinu

Rússnesk flugmálayfirvöld rannsaka nú slysið og verður reynt að komast að því hvort mistökin liggja hjá flugumferðarstjórunum, ökumanni snjómoksturstækisins eða hjá flugmönnum vélarinnar en slæmt skyggni var er slysið átti sér stað eða um 350 metrar.

Christophe de Margerie var á leið heim af fundi með rússnesku ríkisstjórninni þar sem verið var að ræða erlendar fjárfestingar og hafði hann m.a. átt fund með Dmitry Medvedev, forsetisráðherra Rússlands, á heimili hans fyrir utan Moskvu.

Vladimir Markin, yfirmaður rannsóknarnefndar flugslysa í Rússlandi, segir að möguleiki sé á því að nokkrum starfsmönnum flugvallarins verði sagt upp störfum tímabundið á meðan rannsóknin stendur yfir.

Vladimir Pútin, forseti Rússlands, hefur vottað aðstandendum og ættingjum de Margerie samúð sína en þeir voru nánir viðskiptafélagar og kunningjar.

Myndir af flaki vélarinnar er slökkvilið kom á staðinn



Ökumaður snjómoksturstækisins



Ljósmynd sem sýnir þokuna sem var nálægt flugvellinum fyrr um kvöldið







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga