flugfréttir
Avinor tekur í gagnið endurbætta lofthelgi yfir Noregi
Avinor á og rekur m.a. 46 flugvelli í Noregi
Stærsta endurskipulagning á lofthelgi sem ráðist hefur verið í í Noregi er nú senn á enda og undirbýr nú norska flugleiðsöguþjónustan og eignarhaldsfyrirtækið Avinor nú að taka í gagnið nýtt flugumferðarsvæði yfir Noregi.
Endurskipulagið nær yfir flugvellina í Bergen, Haugasund, Kristiansand, Kristiansund, Molde, Røros, Sandane, Sogndal,
Stavanger, Þrándheimi, Ørland og Álasund og mun nýja svæðið verða virkt frá og með 13. nóvember.
Breytingunum er ætlað að bæta og auka öryggi í flugi, skapa meira og sveigjanlegra rými fyrir flugumferð, auka
hagræðni og bæta umhverfismál.
Gert er ráð fyrir seinkunum þegar nýja svæðið verður virkt snemma að morgni 13. nóvember og vinnur Avinor náið
með flugfélögum til að halda seinkunum í lágmarki þegar skipt verður yfir frá gamla flugumferðarsvæðinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.