flugfréttir

Airbus A321neoLR mun hafa lengra flugþol en Boeing 757

- Eru þegar byrjaðir að kynna vélina fyrir flugfélögum

22. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 09:01

Airbus A321neoLR mun ná flugþolinu sem Boeing 757 hefur

Airbus mun koma með á markaðinn á næstnni langdræga útgáfu af lengstu neo-vélinni sem mun kallast Airbus A321neoLR sem mun veita Boeing 757 vélinni samkeppni hvað varðar flugþol.

Kiran Rao, sölu- og markaðsstjóri hjá Airbus, hefur staðfest að flugvélaframleiðandinn sé byrjaður að kynna fyrir flugfélögunum vél sem kallast í augnablikinu A321neoLR og mun hún koma með þrjá viðbótar eldsneytistanka sem gera vélinni kleift að fljúga 900 km í viðbót.

Vélin mun því hafa flugþol upp á 7.222 kílómetra og getur hún því flogið 122 kílómetra lengra en Boeing 757 vélin og 460 kílómetra lengra en Airbus A321neo sem hefur flugþol upp á 6.760 kílómetra.

Allt að 27% lægri rekstrarkosnaður samanborið við Boeing 757

Airbus segir að A321neoLR verði markaðsett fyrir Norður-Atlantshafsflugleiðir, fyrir flug milli Norður- og Suður-Ameríku, milli Evrópu og Afríku og milli Suðaustur-Asíu og Ástralíu.

Kiran Rao segir að það séu um 900 Boeing 757 vélar i umferð ennþá og um 100 af þeim hafa vænglinga ("winglets") og muni rekstrarkostnaður á A321neoLR verða 27% lægri samanborið við Boeing 757.

Vélin mun koma á markaðinn árið 2018 eða tveimur árum eftir að hefðbundna A321neo vélin kemur á markað en ekki verður hægt að breyta A321neo vélinni yfir í A321neoLR.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga