flugfréttir
Þúsundir hermanna vinna við stækkun flugvallarins í N-Kóreu
Hermenn vinna hörðum höndum að því að klára framkvæmdir á nýju flughlaði
Alþjóðaflugvöllurinn í Pyongyang í Norður-Kóreu kemur ekki fyrst upp í hugann yfir þá flugvelli sem verið er að stækka til að anna auknum ferðamannafjölda en viðamikil stækkun stendur þó yfir á vellinum í landinu lokaða.
Þúsundir hermanna starfa nú við að leggja hönd á lokasprett framkvæmdanna og er spiluð norður-kóresk þjóðlagatónlist
í hátalarakerfi til að hvetja hermennina áfram við framkvæmdir á nýju flughlaði sem á að vera tilbúið á mettíma.
Búið er að ljúka svið stækkun á flugstöðinni og fer allt að verða klappað og klárt en samkvæmt frétt The Guardian er allt gert á gamla mátann með einföldum verkfærum.
Fríhafnarverslunin á flugvellinum í Pyongyang
Aðeins fáar flugvélar lenda á flugvellinum í Pyongyang í millilandaflugi og koma þær flestar frá Kína eða Rússlandi en gamla flugstöðin er mjög lítil með einu farangursfæribandi og lítilli búð sem er fríhafnarverslunin.
Ekki hefur enn verið tilkynnt um hvenær nýja flugstöðin opnar en framkvæmdirnar hafa verið á forgangslista hjá ríkisstjórn
Norður-Kóreu.
Aldraður maður í skoðunarferð til að sjá framkvæmdirnar á flugvellinum í Pyongyang
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.