flugfréttir

„99,9 prósent líkur á að við finnum flug MH370“

23. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 07:08

Hishammuddin Hussein, varnarmálaráðherra Malaysíu, ávarpaði leitarflokka í Ástralíu í gær er skipið sótti birgðir og vistir

Leitin að flugi MH370 stendur nú í fullum gangi og sagði Hishammuddin Hussein, varnarmálaráðherra Malaysíu að ekkert verði gefið eftir og sagðist hann vera 99,9 prósent viss um að malasíska farþegþotan muni koma í leitirnar.

Hollenska leitarskipið Fugro Discovery slóst í hópinn í gær með hinum leitarskipunum tveimur og mun það hefja neðansjávarleit og styðjast við þær upplýsingar sem safnað var frá því hafsbotninn var kortlagður í sumar í Suður-Indlandshafinu en malasíska skipið GO Phoenix kom til baka til hafnar á dögunum í Fremantle til að sækja vistir og fer aftur út á haf í dag.

"Með alla þá tækni sem við höfum, og að verið er að leita á réttum stað, þá erum við að tala um 99,9 prósent líkur", sagði Hussein er hann hitti og ávarpaði áhöfnina á leitarskipinu GO Phoenix í Freemantle í Ástralíu í gær.

Evan Tanner, verkefnastjóri yfir leitinni, sagði að sónarbúnaðurinn sem notaður er, getur greint hluti sem eru 10 cm á stærð í kílómeters fjarlægð sem samsvarar stærð á kókdós.

Leitarbúnaði komið fyrir um borð í GO Phoenix í gær í Fremantle í Ástralíu

Hussein sagði með nýjustu sónartækni sem völ er á hefði hann fulla trú á að vélin muni finnast og væri enginn tímarammi í gangi varðandi hvenær leitin mun taka enda.

"Við verðum að halda í voninni því stundum er vonin það eina sem til þarf - við munum finna MH370"

Stjórnvöld á Indónesíu á varðbergi gagnvart braki

Þá hafa stjórnvöld á Indónesíu verið á varðbergi ef eitthvað brak úr vélinni mun eða hefur skolað á land við strendur landsins en flugöryggisstofnun Ástralíu (ATSB) segist fá reglulega tilkynningu frá almenningi í Ástralíu sem telur sig hafa fundið torkennilega hluti við strendur Ástralíu sem gæti verið brak úr vélinni.

Yfirvöld í Ástralíu telja ósennilegt að brak muni hafa rekið til Ástralíu með tilliti til hafsstrauma og telja meiri líkur á að brak gæti hafa frekar rekið í átt að Indónesíu.

Leitarskipið GO Phoenix heldur aftur út á Suður-Indlandshaf í dag og slæst í hópinn með Fugro Discovery og Fugro Equator







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga