flugfréttir

Malaysía vill að upplýsingum frá flugvélum verði miðlað í rauntíma

- Munu kynna tillögur sínar á fundi ICAO í Montréal í næstu viku

25. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:12

Liow Tiong Lai, samgönguráðherra Malaysíu, vill að hægt verði að fylgjast betur með ferðum farþegaþotna

Yfirvöld í Malaysíu ætla að þrýsta á að upplýsingum úr svöru kössum frá farþegaþotum verði sendar í rauntíma en samgönguráðherra landsins ætlar að leggja þær tillögur fram á fundi Alþjóðasamtaka flugfélaganna (ICAO) sem fram fer í Montréal í næstu viku.

Liow Tiong Lai, samgönguráðherra Malaysíu, segir að í ljósi hörmunganna tveggja er flug MH370 hvarf sporlaust í mars í vor og er flug MH17 var skotið niður yfir Úkraínu í júlí væri deginum ljósara að alþjóðasamfélagið yrði að vinna náið saman til að taka það stóra skref sem nauðsynlegt er að taka til að bæta öryggi í flugi.

"Malaysíu ætlar að kynna sínar hugmyndir og koma með sitt innlegg á fundi ICAO í von um að samstaða sé fyrir málinu", sagði Tiong Lai.

Thing Lai átti í vikunni fund með Anthony Foxx, samgönguráðherra Bandaríkjanna, og þakkaði hann þeim stuðningi sem Bandaríkin hafa veitt Malaysíu.

Önnur lotan í leitinni að malasísku farþegaþotunni hófst á ný fyrir tæpum þremur vikum síðan en áströlsk yfirvöld sögðu í gær að leitinni miðaði vel í Suður-Indlandshafi en líkur eru á að leitin gæti tekið nokkra mánuði sökum þess hversu stórt leitarsvæðið er þar sem talið er að vélin hafi endað flug sitt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga