flugfréttir

Snarpur hliðarvindur og mistök flugmanna olli slysinu á Grænlandi

- Rannsóknarnefnd flugslysa í Danmörku gefur frá sér lokaskýrslu

28. október 2014

|

Frétt skrifuð kl. 17:02

OY-GRI skömmu eftir slysið þann 29. janúar

Snarpur hliðarvindur, of mikill lækkunarhraði og mistök flugmanna, sem brugðust ekki rétt við aðstæðum, er talið hafa orsakað að farþegavél frá Air Greenland af gerðinni Bombardier Dash 8 (OY-GRI) brotlenti í lendingu á flugvellinum í Ilulissat á Grænlandi þann 29. janúar fyrr á þessu ári.

Þetta er mat rannsóknarnefndar flugslysa í Danmörku (AIB) sem gaf í dag út lokaskýrslu á flugslysinu sem segir að flugmenn vélarinnar hafi verið of mikið í mun að lenda vélinni þrátt fyrir slæmt veður og hafi þeir þar með brotið öryggisreglur Air Greenland varðandi aðstæður til lendingar en rannsóknarnefndin telur að þeir hefðu átt að hætta við lendingu, fara í fráflug og gera aðra tilraun.

Vélin var að lenda eftir flug frá Kangerlussuaq þegar snörp vindhviða feykti vélinni út af brautinni með þeim afleiðingum að hún þeyttist niður flugvallargarðinn en þrettán farþegar voru um borð og þriggja manna áhöfn og þykir ótrúleg mildi að engann sakaði en vélin var það illa skemmd að hún var afskrifuð.

Flugmennirnir ákváðu að reyna að lenda svo lengi sem að mestu vindhviðurnar væru undir 15 metrum á sekúndu (31 hnútur) en flugturninn hafði tilkynnt að mestu vindhviðurnar væru að fara upp í 19 metra á sekúndu (39 hnúta) sem samsvarar næstum því stormi.

Öryggisreglur Air Greenland kveða á um að flugmenn félagsins reyni ekki að lenda sé hvassara en 25 hnútar en í skýrslunni kemur fram að aðflugið hafi verið mjög óstöðugt og lækkunarhraðinn of mikill sem varð til þess að vélin lenti mjög harkalega með vinstrahjólið ofan í brautina en við það brotnaði öryggispinni í búnaðinum sem varð til þess að hjólastellið gaf sig og féll saman.

Einnig gerðu flugmennirnir þau mistök að eftir að vélin snerti brautina var hliðarstýrið sett lengst til vinstri þeim megin sem hjólið féll saman og þar að auki var ekki sett "reverse thrust" á hægri hreyfilinn.

Rannsóknarnefndin telur að með því hafi verið ógjörningur fyrir flugmennina að halda beinni stefnu á brautinni meðan hún var að hægja á sér og við það hafi vélin farið út af brautinni til vinstri, út af öryggissvæðinu við brautina og niður 10 metra niður aflíðandi flugvallargarðinn þar sem hún staðnæmdist.

Í skýrslunni kemur fram að báðir flugmennirnir hefðu gengist undir þjálfun til að takast á við neyðaratvik í lendingu ef aðalhjólsastell gefur sig en svo virðist sem að þeir hafi ekki getað nýtt sér þá reynslu sem þeir hlutu í þjálfuninni í alvöru aðstæðum.

Hér að neðan má sjá myndband sem dönsk flugmálayfirvöld hafa gefið út þar sem aðflugið og lendingin hefur verið sviðsett m.a.v. upplýsingar úr flugrita vélarinnar.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga