flugfréttir
Virgin sér fram á að staðfesta pöntun í fleiri 787-9 og íhugar að panta 787-10
Boeing 787-9 vél Virgin Airlines mun fljúga á morgun fyrsta áætlunarflugið til Boston
Virgin Atlantic er að skoða þann möguleika að staðfesta pöntun í þær fjórar Dreamliner-vélar sem félagið hefur kauprétt á hjá Boeing.
Virgin á von á 17 farþegaþotum af gerðinni Boeing 787-9 en ef félagið nýtir sér kauprétt í fjórar vélar til viðbótar
mun Dreamliner-flotinn því telja 21 vél árið 2018.
Einnig kemur til að greina að panta lengstu útgáfuna af Dreamliner-vélinni, Boeing 787-10, sem myndi þá leysa
af hólmi þær Boeing 747 vélar sem staðsettar eru á Gatwick-flugvelli en leigusamningur á þeim rennur út árið 2019.
Þótt að Boeing 787-10 verði minni en vélar á borð við Boeing 777 og Airbus A350, þá sér félagið leik á borði að taka
Boeing 787 til að samhæfa þjálfun flugmanna á sömu flugvélategund.
Virgin mun fljúga fyrstu Boeing 787-9 vélinni á morgun
Virgin mun á morgun fljúga fyrsta áætlunarflugið með Boeing 787-9 frá London Heathrow til Boston en félagið
hefur fengið tvær vélar afhentar núna sem munu koma í staðinn fyrir Airbus A340 og þær júmbó-vélar sem félagið
hefur á Heathrow.
Næstu áfangastaðirnir með Boeing 787-9 á eftir Boston verður Washington, Newark og New York JFK en félagið
mun fljúga vélinni fyrst um sinn til austurstrandar Bandaríkjanna á meðan verið er að þjálfa flugmenn á vélina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.