flugfréttir
Fyrsta vél dótturfélags Qatar Airways máluð í litum Al Maha
Fyrsta Airbus A320 vél Al Maha
Lokið hefur verið við að mála fyrstu farþegaþotu Al Maha Airways í litum félagsins sem er nýtt dótturflugfélag Qatar Airways.
Vélin, sem er af gerðinni Airbus A320, var máluð í gær í Toulouse en félagið mun sinna innanlandsflugi í Sádí-Arabíu
og segir á vefsíðu félagsins að starfsemini muni hefjast mjög fljótlega.
Al Maha þýðir "Oryx" sem er tákn antílópu sem er merki Qatar Airways.
Tilkynnt var um að félagið
myndi hefja flug í vor en því var frestað vegna pólitískra deilna milli Qatar, Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sádí-Arabíu og Bahrain.
Félagið mun hefja áætlunarflug með tíu Airbus A320 vélar og mun félagið fljúga m.a. milli Jeddah og Riyadh.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.